39. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, mánudaginn 11. mars 2024 kl. 14:47


Mætt:

Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 14:47
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG), kl. 14:47
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 14:47
Eva Sjöfn Helgadóttir (ESH), kl. 14:47
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 14:47
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 14:47

Þórunn Sveinbjarnardóttir, Sigmar Guðmundsson og Berglind Ósk Guðmundsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 14:47
Nefndin kannaði tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Hákonar Hermannssonar sem hlaut kosningu sem 5. varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, í alþingiskosningunum 25. september 2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Hákonar Hermannssonar.

2) Önnur mál Kl. 14:49
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:49